Gdynia er hafnarborg og sjóherstöð
í samnefndu héraði í Norður-Póllandi við Danzigflóa (Eystrasalt)
nærri Gdansk. Eftir fyrri
heimsstyrjöldina fóru mestir flutningar á sjó um Danzig (Golansk),
sem var fríríki undir vernd Þjóðabandalagsins.
Árið 1924 hófu Pólverjar byggingu nýrrar hafnar í Gdynia,
sem var þá fiskibær með 1500 íbúa.
Áratug síðar var hún orðin að mikilvægustu hafnarborg
Austur-Evrópu með aðstöðu fyrir hafskip.
Skömmu eftir innrás Þjóðverja 1939 voru íbúar Gdynia 120
þúsund talsins. Þjóðverjar
nefndu borgina Gotenhafen. Sovézkar
og pólskar hersveitir ráku Þjóðverja brott úr borginni 1945.
Áætlaður íbúafjöldi 1989 var 250 þúsund. |