Olsztyn er höfuðstaður
samnefnds héraðs við ána Lyna í Norður-Póllandi. Hún er mikilvæg miðstöð járnbrauta og iðnaðar.
Mikið er verzlað með kvikfé, korn og leður og þarna eru sögunarmyllur,
pappírsverksmiðjur og framleiðsla hjólbarða.
Borgin var stofnuð um miðja fjórtándu öld.
Glæsilegur kastali hennar, sem teiftónsku riddararnir byggðu,
er frá þeim tíma (1334). Borgin
og landið umhverfis varð hluti af Póllandi 1466 en Prússar náðu
yfirráðunum 1772. Borgin varð hluti af prússneska héraðinu Allenstein.
Eftir síðari heimsstyrjöldina fengu Pólverjar yfirráðin á
ný undir eftirliti samkvæmt Potsdamsamkomulaginu.
Áætlaður íbúafjöldi 1985 var 150 þúsund. |