Malta er meðal þéttbýlustu ríkja Evrópu og heimsins alls,
því að þar búa milli 1000 og 1100 manns á hverjum ferkílómetra. Mesta þéttbýlið er á norðanverðri aðaleyjunni og
langmest í kringum náttúruhafnirnar „Stóruhöfn” og
„Marsamxett-höfn” eða allt að 7700 manns á km².
Á milli þeirra er 60 m hár og langur skagi, þar sem höfuðborgin,
Valletta, er. Strjálbýlast er á norðurhluta Möltu eða tæplega 300
manns á km². Svipaða sögu
er að segja um eyjarnar Gozo og Comino. |