Kóraleyjan Kwajalein er í
Vestur-Kyrrahafi, u.þ.b. 3.470 km suðvestan Hawaii og 2.310
km austan Guam. Þar er herstöðin USAKA (United States
Army Kwajalein Atoll) með nálægt 2000 manna starfsliði og
fjölskyldum þess. Þetta fólk býr á Kwajalein og
Roi-Namur. Í forsetatíð Ronalds Reagans fóru þar fram
tilraunir með varnarflaugar gegn kjarnorkuárásum.
Þar
er Bucholz herflugvöllurinn, sem veitir bæði her- og almennu
flugi þjónustu. Flugstjórn er í höndum
FAA og við hana starfa bandarískir flugumferðarstjórar.
Kwajalein er hluti Lýðveldisins Marshalleyja. |