Providencia
er aðgengileg með litlum flugvélum frá San Andrés. Hún er 80 km norðan San Andrés, 5 km breið og 23 km löng.
Íbúafjöldinn er rúmlega 5.000 manns.
Einkennandi fyrir þessa eldfjallaeyju er blágrýti og þursaberg
(brexía). Hæsti staður
eyjarinnar er í 400 m.y.s. og því er úrkoma þar miklu meiri en á
San Andrés, 1.400 mm á ári. Mjög
góð skilyrði til ræktunar banana og sítrusávaxta. |