Kúba samgöngur Karíbahaf,
Flag of Cuba


KÚBA
SAMGÖNGUR

.

.

Utanríkisrnt.

Booking.com

cuba08.jpg (63468 bytes)Samgöngubætur eru vel á veg komnar vegna þess, hve landslagið er hentugt til vegagerðar.  Rúmlega helmingur hins 32.000 km langa vegakerfis er með bundnu slitlagi.  Hraðbraut liggur á milli Pinar del Rio í vestri og Santiago de Cuba í austri.  Hlutar þessarar hraðbrautar, sem eru ekki aðskildir með gróðureyjum, eru hugsaðir sem mögulegar flugbrautir.

Allar stærri borgir eru tengdar járnbrautum og verið er að leggja 860 km langa braut milli Havanna og Santiago de Cuba.

Mestur hluti útflutnings Kúbu fer um hafnirnar, 19 á norðurströndinni og 11 á suðurströndinni.  Um Havanahöfn fer fjórðungur innflutningsins.

Flugsamgöngur drógust mikið saman við sambandsrofin við Bandaríkin.  Frá Havana er flogið til og frá 15 flugvöllum innanlands.  Kúbversk og sex erlend flugfélög annast millilandaflugið.  Flugvellirnir við Havana og Varadero taka aðallega við fjölgun ferðamannanna.  Árið 1999 var losað lítillega um flughömlur frá BNA.

Mynd:  Kalmelstrætó í Havana.

 TIL BAKA        Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir         HEIM