Vancouver
er stór borg í suðvesturhorni Brezku Kólumbíu í Kanada.
Hún stendur milli Burrardvíkur, sem gengur inn úr Georgíusundi,
í norðri og ósa Fraserárinnar í suðri og andspænis Vancouvereyju.
Skammt er til landamæra BNA (Washingtonríkis) ís suðri.
Lega borgarinnar er einstaklega fögur milli fjalls og fjöru og
höfnin er meðal beztu náttúruhafna landsins.
Rætur
Vancouver liggja í byggð, sem myndaðist í kringum sögunarmyllur á
áttunda tugi 19. aldar.
Borgarréttindi fengust 1886, þegar fyrsta járnbrautin þvert
yfir Kanada náði þangað (Canadian Pacific), og bærinn var þá
endurskírður í höfuðið á George Vancouver, sjóliðsforingja í
konunglega sjóhernum, sem kynnti sér strandlengjuna 1792.
Árið 1886 eyddist bærinn næstum alveg í eldi en náði sér
á strik.
Mikilvægi borgarinnar óx enn, þegar Panamaskurðurinn var opnaður
1915. Þá
varð arðbært að selja kornvöru og timbur til landa á austurströnd
Ameríku og Evrópu.
Í kringum 1930 var Vancouver orðin þriðja stærsta borg
landsins og aðalhafnarborgin við Kyrrahafið.
Nú
er borgin aðalmiðstöð iðnaðar, samgangna, viðskipta og fjármála
Brezku Kólumbíu.
Höfnin er íslaus á veturna og er fær stærstu skipum.
Alþjóðaflugvöllurinn þjónar borginni, austurhluta fylkisins
og Seattle í BNA (Washingtonfylki), sem er 200 km sunnar.
Timburvinnsla, byggð á miklum skógum í bakgarði borgarinnar,
er meðal aðalatvinnuvega borgarinnar.
Mikið er framleitt af borðviði og pappír og orkan til
vinnslunnar fæst frá vatnsorkuverunum í norðri og úr olíu og gasi
frá Alberta (sjá Calgary,
Edmonton).
Matvælaiðnaður, fiskveiðar og vinnsla, skipasmíðar, málmvinnsla,
prentun og útgáfustarfsemi eru líka veigamiklar iðngreinar.
Yfirbragð
borgarinnar er blanda af brezkum og austurlenzkum áhrifum.
Þar er kínahverfi, sem nálgast sams konar hverfi í San
Francisco að stærð og útliti.
Gamla borgarmiðjan, sem er kölluð Gastown (1880), hefur smám
saman verið endurbyggð.
Viðskiptahverfið er uppi af höfninni meðfram Burrardvíkinni
og False Creek Large, sem er íbúðahverfi í fallegu landslagi,
teygist suður og austur meðfram ósum Fraserárinnar.
Þar eru líka borgarhlutarnir New Westminster, Port Moody og
Port Coquitlam.
Norðan Burrardvíkur eru íbúðarúthverfi Norður- og
Vestur-Vancouver, sem teygja sig að undirhlíðum allt að 1500 m hárra
fjalla.
Þessi hverfi tengjast borginni um brýrnar Lions Gate og Second
Narrows.
Meðal menntastofnana borgarinnar eru Háskóli Brezku Kólumbíu
(1908) með áhugaverðu mannfræðisafni, Simon Fraser háskólinn
(1963), H. R. MacMillan stjörnuathugunarstöðin, Aldar- og sjóminjasöfnin,
Listasafn Vancouver (1931) og Brezku Kólumbíu leikvangurinn.
Stanley almenningsgarðurinn með trjásafni, sædýrasafni og dýragarði
nær yfir 406 ha svæði á tanga í miðborginni við hafnarmynnið.
Áætlaður íbúafjöldi Stór-Vancouver 1991 var 1.602502.
Brezka Kólumbía
Icelandair
flýgur til Vancouver borgar.
Ferðatímabil 13. maí til 12. október 2014. |