Sault
Sainte Marie er borg í Algpmahéraði í Suður-Ontaríó í Kanada við
St. Mary’sána og Sault Sainte Marie-skurðina andspænis Sault
Stainte marie í Michigan BNA.
Hún er mikil hafnar-, iðnaðar og ferðamannaborg.
Helztu framleiðsluvörur eru járn og stál, timbur, pappír og
efnavörur.
Byggð fór að myndast á staðnum árið 1783 eftir að Norðvesturfélagið
kom sér upp skinnamarkaði og í stríðinu 1812 eyðilögðu bandarískir
herir mestan hluta byggðarinnar og skurðanna.
Síðla á 19. öld óx byggðin í tengslum við samgöngur og
flutninga.
Íbúafjöldinn 1986 var 80.905 og 81.476 árið 1991. |