Ischia
er 46 km² eldfjallaeyja nyrzt í Napólíflóa með 40.000 íbúa.
Hið gríska nafn eyjarinnar var 'Pithekusa' en Rómverjar nefndu
hana Aenaria. Á 9.öld hét
hún Iscla. Á henni eru
nokkur þorp og kastali frá 1450 í 91 m hæð yfir sjó.
Gróður er mikill, margir ávaxtagarðar, vínrækt, fura.
Þar er líka að finna geislavirkar lindir, sem eru notaðar til
lækninga gigtarsjúklinga. Hæsti
punkturinn er á miðri eyjunni, Monte
Epomeo, 789 m. Þar gaus síðast
árið 1302. |