New Ross Írland,
Ireland Flag


NEW ROSS / ROS MHIC TREOIN
ÍRLAND
.

.

Utanríkisrnt.

Íbúafjöldi 5400.  Ros Mhic Treoin þýðir:  Skógur sonar Treann.  Bærinn er í sa-horni landsins á bröttum austurbakka árinnar Barrow.  Hann er einn elzti bærin í Wexfordhreppi með mjóum og bugðóttum götum, sem eru sums staðar of mjóar fyrir bíla, þannig að andi miðalda svífur yfir honum. Bærinn er mikilvæg höfn inni í landi.  Mikil umferð minni báta er á ánni og á markaði bæjarins eru seldar afurðir bænda úr nágrenninu.  Löng brú tengir New Ross við úthverfið í Kilkennyhreppi.

Kirkja hl. Maríu frá fyrri hluta 12. aldar var stór sóknarkirkja  en aðeins standa eftir þver-göngin og kórinn.  Miðhlutinn var rifinn á 19. öld til að rýma fyrir nýrri kirkju.  Eftir standa þrír gotneskir gluggar og miðaldagrafhýsi.


The Tholsel, ráðhúsið, var byggt á árunum 1749 - 1804 í nýklassískum stíl og klukkuturni.

 TIL BAKA        Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir         HEIM