Mashhad
eða Meshed er höfuðborg Khorasan-héraðs í Kashaf Rud-dalnum í
grennd við landamæri Turkmenistan og Afghanistan.
Hún er ein stærsta borg landsins og mikilvæg miðstöð
samgangna, iðnaðar og trúariðkana.
Umhverfis hana er stundaður talsverður landbúnaður.
Teppagerð og annar ullariðnaður er hefðbundinn í borginni og
þar að auki er talsvert framleitt af vefnaðarvöru, efnavöru, lyfjum
og matvælum.
Grafreitur og helgidómur trúarleiðtogans Ali ar-Rida (f.hl. 9. aldar)
er meðal helgustu staða landsins og laðar til sín fjölda ferðamanna. Gröf kalífans Harun ar-Rashid er líka í helgidómnum.
Háskóli borgarinnar var stofnaður árið 1956 og rústir
fornborgarinnar Tus eru í nágrenninu.
Mashhad
varð mikilvæg trúarmiðstöð á 9. öld.
Abbas I, keisari, endurbyggði borgina eftir skemmdir, sem innrásarherir
ollu og hún dafnaði undir stjórn Nadir Shah sem höfuðborg hins stóra
Íranska keisaradæmis.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1991 var tæplega 1,8 miljónir.
Teppagerðin byggist á ullarframleiðslu á svæðinu.
Einnig er talsverður vefnaður, efnaiðnaður, lyfjagerð og
matvælaframleiðsla.
Greftrunarstaður og helgistaður trúarleiðtogans Ali ar-Rida (9. öld)
er meðal helgustu staða síta-múslima í Íran. Þangað koma margir
ferðamenn og pílagrímar. Gröf kalífans Harun ar-Rashid er einnig
á þessum helgistað. Mashhad-háskóli (1956) er þarna einnig og
rústir fornborgarinnar Tus eru í grenndinni. |