Pohnpei-eyja
(Ponape), fyrrum Ascension-eyja (þó ekki sú, sem er í Atlantshafi),
er ein eyja Bandaríkja Míkrónesíu í Karólínueyjaklasanum.
Hún er hæðótt eldfjallaeyja, u.þ.b. 335 km² að flatarmáli,
og umhverfis hana eru stór rif, sem umkringja hinar smærri eyjar. Nokkur svæði eru frjósöm og þar eru ræktaðir kókospálmar,
brauðaldintré, pipar og taro. Kolonía
er stærsta borgin og höfuðborg landsins.
Eyjan var ein eyjanna, sem Sameinuðu þjóðirnar tóku upp á
arma sína og fól BNA að stjórna.
Áætlaður íbúafjöldi 1991 var rúmlega 33 þúsund. |