Llangollen
er líflegur markaðsbær í Clwyd í Vels með fallegum sumarleyfisstöðum
við Dee-ána við rætur Velsku fjallanna.
Llangollenskurðurinn er ófjarri bænum.
Síðan 1946 hefur bærinn séð um hinar árlegu og vinsælu tónlistarhátíðir
Eisteddfod.
Fjórtándu
aldar brúin yfir Dee-ána í bænum er talin með sjö undrum Vels og
hann státar líka af Valle Crucis Abbey (klaustur), sem Madog ap
Gruffydd, prins, stofnaði 1202, Castell-Dinas-Bran frá 13. öld og
steinkrossinum Eliseg’s Pillar frá fyrri hluta 9. aldar, sem var
reistur til minningar um sigur Elisegs í orrustunni í Bangor.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1981 var 3.100. |