Blackpool er í Norðvestur-Englandi
í 5 m hæð yfir sjó með 150.000 íbúa.
Blackpool er mesti ferðamannastaður í NV-Englandi og
straumurinn eykst þangað. Margir
Bretar fara þangað í sumarleyfum sínum.
Hægt er að hýsa u.þ.b. hálfa milljón gesta í einu.
Óteljandi tækifæri til afþreyingar:
Asnaútreiðar, golf, dýragarðar, fjölleikahús, danshallir,
leikhús, kvikmyndahús, sundlaugar, bátsferðir, sædýrasafnið í
Blackpoolturninum (158 m) og fleira.
Á haustin er strandgatan skrautlýst.
Danskeppnir, tónlistahátíðir og landbúnaðarsýningar (á
sumrin). Íslenzk danspör
hafa verið sigursæl í danskeppnunum þar.
Verkalýðsfélög halda ráðstefnur í Blackpool. |