Ålborg
(Alburgum) er hafnarborg og höfuðborg Norður-Jótlands á Norðaustur-Jótlandi
við sunnanverðan Limafjörð nærri Århus.
Helztu framleiðsluvörur borgarinnar eru sement, efnavara og áfengi
(Álaborgarákavíti). Borgin
var stofnuð snemma á 11. öld og hefur verið biskupssetur síðan
1554. Rebild þjóðgarðurinn
er í grennd við borgina. Hann
var opnaður 1912 til minningar um vináttu Dana og Bandaríkjamanna.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1988 var 155 þúsund. |