Richmond í Virginia er 177 km frá
Washington. Borgin var
stofnuð árið 1737. Íbúafjöldinn
1990 var u.þ.b. 220.000. Þar
er stundaður iðnaður og verzlun (mest tóbak).
Jamesá er skipgeng til Richmond.
Borgin var höfuðstaður Suðurríkjanna í þrælastríðinu
1861-65. Þrír háskólar.
Capitol (fyrirmyndin var Maison Carrée í Nimes í Frakklandi).
Umhverfis
Richmond eru vígvellir 7 daga orrustunnar 26/6-2/7 1862, þar sem
40.000 féllu. |