Arlington er borg við
Þrenningarána (Trinity River) og Arlingtonvatn milli Dallas og Fort
Worth. Hún er miðstöð
flutninga og iðnaðar (bílar, flugvélar, landbúnaðarvélar og tæki,
plast, rafeindatæki, prentað efni og matvæli).
Þróun iðnaðar tengdum bílasmíði og búnaði til geimferða
leiddi til talsverðrar fjölgunar íbúa á níunda áratugi 20. aldar.
Borgin er setur Texasháskóla (1895) og þar er leikvangurinn
Ballpark, heimavöllur Texas Rangers (hafnarbolti).
Bærinn var stofnaður árið 1875 og var nefndur eftir Arlington
í Virginíufylki. Eftir að
járnbrautin hafði verið lögð inn á þessar slóðir, óx gengi bæjarins
vegna baðmullarvinnslu. Iðnvæðing
í stórum stíl hófst upp úr miðri 20. öldinni. Áætlaður íbúafjöldi
1990 var tæplega 262 þúsund. |