Suður-Karólínu er stjórnað í anda stjórnarskrárinnar
frá 1895/1896. Æðsti embættismaðurinn, fylkisstjóri, er kosinn í
almennum kosningum til 4 ára í senn og má bjóða sig fram án takmarkana
en ekki þjóna lengur en 2 samfelld kjörtímabil. Aðrir kjörnir
embættismenn eru varafylkisstjóri, innanríkisráðherra,
dómsmálaráðherra, fjármálaráðherra, ríkisendurskoðandi,
menntamálaráðherra, landbúnaðarráðherra og formaður herráðsins.
Þingið starfar í öldungadeild (46; 4 ár) og fulltrúadeild (124; 2 ár).
Fylkið á tvö sæti í öldungadeild og 6 sæti í fulltrúadeild
sambandsþingsins í Washington DC og ræður 8 kjörmönnum í
forsetakosningum.
Oftast hefur fylkið verið eitt vígja demókrata en síðari hluta 20.
aldar hefur lýðveldisflokkurinn eflzt. Árið 1975 náði frambjóðandi
hans kjöri sem fylkisstjóri eftir heillar aldar hlé. Kjörmenn
fylkisins studdu frambjóðendur demókrata til forsetaembættisins
undantekningalaust á árunum 1880-1948, þegar Strom Thurmond,
fylkisstjóri, varð frambjóðandi demókrata. Hann hlaut kosningu til
öldungadeildar sambandsþingsins 1956 en fluttist yfir í
lýðveldisflokkinn 1964. Síðan á sjöunda áratugnum hafa frambjóðendur
lýðveldisflokksins til forsetaembættisins hlotið stuðning kjörmannanna. |