Allentown er miðstöð
flutninga og iðnaðar í Pennsylvaníu (efnavara, sement, flutninga- og
farartæki, raftæki, fatnaður, skór, matvæli, vindlar og málmar). Meðal nýlendubygginga, sem enn standa er Zion-kirkjan, þar
sem Frelsisbjallan var falin á meðan Bretar réðu Fíladelfíu
1777-78. Byggðin,sem varð
að Allentown, hófst 1762 undir nafninu Northamtontowne en nýja nafnið
var tekið upp 1838 og þá var hugsað til stofnanda borgarinnar, lögfræðingsins
William Allen. Áætlaður
íbúafjöldi 1990 var rúmlega 105 þúsund. |