Oklahoma stjórnsýsla Bandaríkin,


STJÓRNSÝSLA
OKLAHOMA

.

.

Utanríkisrnt.

Oklahoma er stjórnað í anda stjórnarskrárinnar frá 1907.  Æðsti embættismaður er fylkisstjóri, sem er kosinn í almennum kosningum til 4 ára í senn.  Sami frambjóðandinn má þjóna í tvö kjörtímabil í röð, ef hann nær kjöri.  Aðrir kjörnir embættismenn eru varafylkisstjóri, dómsmálaráðherra, fjármálaráðherra, ríkisendurskoðandi, menntamálaráðherra og ráðherra verkalýðs- og tryggingamála.

Þingið starfar í öldungadeild (48; 4 ár) og fulltrúadeild (101; 2 ár).  Fylkið á tvö sæti í öldungadeild og sex sæti í fulltrúadeild sambandsþingsins í Washington DC og ræður tveimur kjörmönnum í forsetakosningum.

Fylkið var eitt af höfuðvígjum demókrata fram á sjöunda áratuginn.  Síðan hefur lýðveldisflokkurinn komið öldungum á sambandsþingið og í fylkisstjórastólinn.  Allt fram á fimmta áratuginn studdu kjörmenn fylkisins frambjóðendur demókrata til forsetaembættisins en síðan hafa atkvæðin lent lýðveldisflokksmegin.


 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM