Greensboro er miðstöð
viðskipta, iðnaðar og flutninga fyrir landbúnaðarhéraðið
umhverfis borgina. Hún er
meðal stærstu borga Norður-Karólíunufylkis og aðalframleiðsluvörurnar
eru baðmullarvefnaður, efnavörur, lyf, rafvélar, tóbaksvörur og
byggingarefni. Borgin er
setur Fylkisháskólans (1891), Greensboro-háskólans (1838) og Landbúnaðar-
og tækniháskóla fylkisins (1891).
Borgin var skírðeftir Nathanael Greene, sem stýrði liði BNA
í orrustunni Guilford Courthouse (1781) í frelsisstríðinu.
Smásagnaritarinn
William Sidney Porters
(O.Henry) og hinn kunni blaðamaður, Edward R.
Murrow, fæddust á þessu svæði.
Í febrúar 1960 sátu fjórir svartir stúdentar við borð í
kaffihúsi fyrir hvíta í miðbæ Greensboro og hófu þar með friðsamlega
baráttu gegn kynþáttafordómum.
Áætlaður íbúafjöldi 1990 var tæplega 184 þúsund. |