Roswell er miðstöð
viðskipta í kvikfjárræktarhéraði í Nýja-Mexíkófylki. Iðnframleiðslan byggist á baðmull, olíu, náttúrugasi
og framleiðslu málmvöru, langferðabíla og fatnaðar. Milt lofstslagið gerir Roswell að heppilegum dvalarstað
eftirlaunaþega. Borgin er
setur Herskóla fylkisins (1891) og Fylkislistasafnsins. Byggð hófst á svæðinu í kringum 1869 og hún var nefnd
eftir föður eins landnámsmannanna, Roswell Smith.
Nautgripabaróninn John S. Chisum byggði höfuðstöðvar búgarða
sinna í grennd við bæinn árið 1875.
Árið 1894 tengdist Roswell járnbrautunum.
Áætlaður íbúafjöldi 1990 var tæplega 45 þúsund. |