Nýja-England er
samheiti sex fylkja í norðausturhorni BNA, Maine, Nýja-Hampshire,
Vermont, Massachusetts, Rhode-Eyjar, og Connecticut.
Vestan þessa svæðis er New York-fylki, Kanada að norðan,
Atlantshafi að austan og Löngueyjarsund að sunnan.
Landslag hækkar til norðurs og vesturs að Appalachia-fjöllum.
Ströndin er mikilvægust viðskiptalega, þótt ferðaþjónusta
og iðnaður hafi tekið við sem undirstöður efnahagsins af fiskveiðum
og skipasmíði. Marga sögulegustu
atburði nýlendutíma BNA, þ.m.t. upphaf frelsisstríðsins, má rekja
til Nýja-Englands. |