Meridian Mississippi Bandaríkin,


MERIDIAN
MISSISSIPPI

.

.

Utanríkisrnt.

Meridian er miðstöð verzlunar, iðnaðar, flutninga og heilbrigðisþjónustu í landbúnaðarhéraði (nautgripir, timbur).  Framleiðsluvörur borgarinnar eru m.a. rafeindatæki, bílahlutar og fatnaður.  Þarna er háskóli og safn til minningar um þjóðlagasöngvarann Jimmie Rodgers, sem er grafinn í borginni.  Landnám hvítra hófst á þessum slóðum árið 1831.  Byggðin myndaðist við brautamót járnbrautanna árið 1854 og líklega var hún nefnd eftir Meridianville í Alabama.  Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var 41 þúsund.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM