Santa Barbara er verzlunar- og iðnaðarborg og
miðstöð menntunar í Kaliforníu
(rafeinda- og tölvuiðnaður). Þar
er vinsæll baðstaður í fögru umhverfi.
*Trúboðsstöðin,
stofnuð 1786, er nú aðalsetur Fransiskusarreglunnar í Kaliforníu.
Kirkjan er frá 1820. Listasafn,
náttúrugripasafn, sögusafn, safn um vídeótækni, lystigarður, héraðsdómshús.
Risafíkjutré með krónu, sem er 46 m í þvermál. |