Sacramento
í Kaliforníu hefur u.þ.b. 280.000 íbúa.
Þarna byggðist upp þorp í kringum virki (1839; J.A.Sutter,
svissneskur höfuðsmaður). Sacramento var höfuðborg Kaliforníu. Hún stendur við ármót American River og Sacramentoár og
óx mjög við gullfundina 1848. Bærinn
var vesturendastöð „Pony Express”.
Nú er borgin samgöngu- og viðskiptamiðstöð landbúnaðarhéraðs
(m.a. möndlurækt). Skógarhögg.
Framleiðsla matvæla, flug- og geimiðnaður. 69 km langur skipaskurður tengir borgina við San Pabloflóa.
Ríkisháskóli frá 1947 (22.000 stúdentar).
Í grennd við borgina eru 2 herstöðvar flughersins.
Skoðunarverðir staðir
Capitol
(1869-74; gylltur kúpull) er í stórum garði.
Trjáskreyttar götur.
E.B.Crockerlistasafnið
með evrópskri, bandarískri og austurlenzkri list.
Gamla
Suttervirkið er í samnefndum garði í gömlu Sacramento.
Gamla
Sacramento.
Í ágúst og sept. er Kaliforníusýningin (ródeó o.fl.). |