Iowa stjórnsýsla Bandaríkin,


STJÓRNSÝSLA
IOWA

.

.

Utanríkisrnt.

Iowa er stjórnað í anda stjórnarskrárinnar frá 1857.  Æðsti embættismaðurinn er fylkisstjóri, sem er kosinn í almennum kosningum til 4 ára í senn án framboðstakmarkana.  Aðrir kjörnir ebættismenn eru varafylkisstjóri, innanríkisráðherra, dómsmálaráðherra, fjármálaráðherra, ríkisendurskoðandi og landbúnaðarráðherra.

Þingið starfar í öldungadeild (50; 4ár) og fulltrúadeild (100; 2 ár).  Fylkið á tvö sæti í öldungadeild og fimm sæti í fulltrúadeild sambandsþingsins í Washington DC og ræður sjö kjörmönnum í forsetakosningum.

Lýðveldisflokkurinn hefur oftast ráðið heima og að heiman, þótt demókratar hafi unnið nokkra sæta sigra síðan á sjöunda áratugnum.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM