South Bend er borg í Indiana, miðstöð mennta-, fjár- og
heilbrigðismála. Borgarbúar framleiða flugvélar, bílahluti,
málma, kúlulegur og raftæki. Þarna starfar
synfóníuhljómsveit og Indiana-háskóli (1940). Notre Dame-háskólinn
og St Mary’s-háskólinn (1844 eru í nágrannabænum Notre
Dame. Árið 1681 samdi Robert Cavelier, sieur de La Salle,
við miami- og illinois-fólkið, sem bjó á borgarstæðinu, um
uppbyggingu byggðar hvítra manna. Hún þróaðist síðar
umhverfis skinnaverzlunarstað, sem komst á laggirnar 1823.
Íbúafjöldinn 1980 var 109.727 og áætlaður fjöldi árið 1990
var 105.500. |