Niihau er eyja í norðvestanverðri Hawaii-eyjakeðjunni. Þar
er aðallega stundur kvikfjárrækt og ræktun sefs til
körfuvefnaðar. Eyjan er í einkaeigu. Aðalbyggðin þar er
Puuwai. Heildarflatarmál Niihau er 178 ferkílómetrar og
áætlaður íbúafjöldi þar var 200 árið 1990.