Molokai er eyja í Hawaii-eyjakeðjunni milli Oahu og Maui,
stundum kölluð Vinalega eyjan. Á suðurströnd hennar er
hafnarbærinn Kaunakakai. Heildarflatarmálið eyjarinnar er
673 ferkílómetrar. Hæsti hluti hennar er 1512 m á
Kamakou-tindi. Landbúnaðurinn byggist á ræktun ananas,
kaffis og nautgripa. Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var
6.717. árið 1873 hóf belgíski trúboðinn, séra Damien, boðun
kaþólsku í holdsveikranýlendunni Kalawao á Kalaupapa-skaga á
norðanverðri eyjunni. |