Hilo er borg á Hawaii
við Hiloflóa. Þar
settust trúboðar að snemma á þriðja áratugi 19. aldar.
Hún er ein stærsta borg fylkisins, lífleg hafnarborg og miðstöð
viðskipta og ferðaþjónustu. Umhverfis
hana eru akrar, þar sem er ræktaður sykurreyr, ávextir, orkideur og
makadamíahnetur. Hawaii-háskóli
(1947), Lyman Hous-minningarsafnið (1839), Nani Mau-garðarnir og
Liliuokalani- skemmtigarðurinn. Í
grennd borgarinnar eru Eldfjallaþjóðgarðurinn (Mauna Loa og Kilauea
og útbrunna eldfjallið Mauna Kea) og Mauna Kea eftirlitsmiðstöðin.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var tæplega 38 þúsund. |