South Beach Flórída Bandaríkin,
Flag of United States


SOUTH BEACH
FLORIDA

.

.

Utanríkisrnt.

Booking.com

Fyrir marga er ekki hægt að sleppa því að sletta úr klaufunum í Miami fari maður á annað borð til Florida. South Beach, öðru nafni SoBe, er höfuðstaður sólar-, strand- og skemmtanalífs á Miami Beach, sandrifinu mikla undan Miami.

South Beach hefur getið sér gott orð fyrir veitingastaði þar sem kynnast má öllu hinu besta í bandarískri og alþjóðlegri matargerð. Og fyrir þá sem vilja lyfta sér ærlega upp og vaka frameftir er úr nógu að velja. Meðal vinsælla skemmtistaða má nefna Groove Jet, Bash, Amnesia og Liquid.

Það er líka gaman að versla í South Beach, hér eru þekktar verslanir, svo sem Armani Exchange, The Gap og Banana Republic, og verðið er mjög hagstætt.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM