Delawareflói er fyrir Atlantshafsströnd BNA. Norðan hans er
New Jersey. Mynni hans er 19 km breitt milli Maihöfða í New
Jersey og Henlopenhöfða í Delaware. Hann er u.þ.b. 80 km
langur og milli 4 og 6 km breiður inns og 48 km um miðbikið.
Dýpi er milli 9 og 18 m. Til hans rennur Delawarefljót og
fjöldi annarra áa og lækja frá Delaware og New Jersey. Fátt
er um náttúruhafnir en Delawaregarðurinn við Henlopenhöfða
veitir gott skjól fyrir höfnina í Lewes (D).
Chesapeake-Delaware skipaskurðurinn veitir greiðan aðgang
hafskipa að Baltimore og öðrum höfnum við Chesapeake-ána.
Talsvert veiðist af ostrum og öðrum skelfiski, krabba og
humri í flóanum. |