Stjórnsýslan í Connecticut er háð stjórnarskránni, sem var
lögleidd árið 1965. Æðsti embættismaðurinn er
fylkisstjórinn, sem er kosinn í almennum kosningum til
fjögurra ára í senn. Engin takmörk eru sett í lögum fyrir
því, hve oft sami maður getur boðið sig fram til þessa
embættis. Sömu skilyrði eiga við um varafylkisstjórann.
Aðrir embættismenn, sem eru kosnir í almennum kosningum eru
innanríkisráðherrann, saksóknari ríkisins,
fjármálaráðherrann og ríkisendurskoðandi.
Löggjafarþingið starfar í tveimur deildum, öldungadeild (36)
og fulltrúadeild (151). Þingmenn beggja deilda eru kosnir
til tveggja ára í senn. Fylkisstjórinn eða meirihluti
annarrar hvorrar þingdeildanna geta kvatt saman þingið.
Tveir þingmenn til öldungardeildar sambandsþingsins í
Washington DC eru einnig kosnir í almennum kosningum.
Fylkið ræður átta kjörmönnum í forsetakosningum.
Lýðræðissinnar voru sigursælli en demókratar í fylkis- og
þjóðarkosningum á frá 1850 fram á fjórða áratug 20. aldar.
Um miðja öldina náðu demókratar sér á strik. Á sjötta og
sjöunda áratugnum hafði demókrataflokkur fylkisins mikil
áhrif um öll Bandaríkin. Fylkisstjórar Connecticut hafa
flestir verið demókratar síðustu áratugi, þótt íbúar
fylkisins hafi hallað sér í átt til lýðræðissinna í
forsetakosningum. Lowell P. Weicker hinn yngri,
frambjóðarnid óháðra, var kosinn fylkisstjóri árið 1990. |