Bridgeport er í
farabroddi iðnaðarborga Connecticut-fylkis og mikilvæg fjármálamiðstöð.
Íbúarnir framleiða m.a. þyrlur og elektrónísk tæki.
Ferjur eru gerðar út milli Port Jefferson, New York og
Bridgeport. Borgin er setur
Bridgeport-háskóla (1927), Háskóla hins heilaga hjarta (1963) og
Verkfræðiskóla Bridgeport (1924).
Það er áhugavert að heimsækja Barnumsafnið og líta á Tom
Thumb-styttuna, sem var reist til heiðurs P. T. Barnum og Charles S.
Stratton (Tom Thumb), sem bjuggu í borginni.
Byggð fór að myndast á þessum
stað árið 1839.
Hún óx smám saman og byggðist á fiskveiðum.
Hröð iðnvæðing hófst eftir borgarastyrjöldina.
Nafn hennar er dregið af kláfi, sem var byggður nærri höfninni.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var rúmlega 140 þúsund. |