Flatarmál
31 km². Íbúafjöldi u.þ.b.
700. Áætlunarflug frá
Nassau til Chub Cay og Great Harbour Cay.
Leiguflug til annarra nærliggjandi eyja.
Samgöngur á sjó frá Nassau til Chub Cay og Great Harbour Cay
oft í viku.
Berryeyjar,
30 talsins auk tuga hólma og skerja, eru u.þ.b. 50 km norðan New
Providence. Þær eru paradís
sóldýrkenda, stangaveiðimanna, kafara og siglingafólks.
Aðeins fáar eyjanna eru stöðugt í byggð.
Nokkrar þeirra eru í eigu fjársterkra Bandaríkja- og
Kanadamanna (Whale Cay, Little Whale Cay o.fl.).
*Chub
Cay
er
á suðurenda eyjaklasans. Chub Cay er bezt útbúni staður heims fyrir
sportveiðimenn og kafara.+
*Mamma
Rhoda Rock
er gróðurríkt
hafsbotnssvæði í skjóli 5 m hás kóralrifs suðaustan Chub Cay.
Whale
Cay Hoffman's Cay.
Í kringum rifin í
Whale Cay og Hoffman's Cay, 20 km norðar eru kafara paradís. |