Kitwe
er borg í grennd við Kafue-ána og landamærin að Zaïre. Hún er meðal
stærstu borga landsins og miðstöð koparnáms og iðnaðar (matvæli,
plastvörur og fatnaður). Borgin fær raforku frá orkuverinu við
Karibastífluna í Zambezifljótinu sunnan hennar. Tæknistofnun Zambíu er
í borginni. Koparnám var hafið við stofnun fyrirtækis um námugröftinn
árið 1936. Kitwe óx og dafnaði eftir síðari heimsstyrjöldina og árið
1961 sameinaðist borgin Nkana henni. Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var
rúmlega 338 þúsund. |