El
Obeid er borg á hinni þurru Kordofansléttu. Hún er markaðsmiðstöð tengd
Khartoum og Port Súdan með járnbraut. Mest er verzlað með arabískt
gúmmí (úr akasíutrjám), olíufræ, kvikfé og aðrar afurðir
nágrannasveitanna. Egyptar stofnuðu El Obeid árið 1821. Árið 1883 fór
Muhammad Ahmad, leiðtogi múslima, með her gegn Egyptum og sigraði þá.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1993 var rúmlega 228 þúsund. |