Bláa-Níl í Norðaustur-Afríku er í kringum 1370 km löng. Upptök hennar
eru í 1830 m hæð yfir sjó á svæði Tanavatns í Norðvestur-Eþíópíu. Hún
rennur þaðan til suðurs og síðan vesturs í Eþíópíu og þaðan í norðvestur
um Súdan áður en hún sameinast Hvítu-Níl við Khartoum og fær nafnið Níl.
Bláa-Níl leggur Níl til u.þ.b. tvo þriðjunga vatnsmagnsins. Í Eþíópíu
er hún kölluð Abbai og rennur að hluta um djúpt gljúfur. Áin er stífluð
í Súdan vegna rafmagnsframleiðslu og áveitna. |