Bo er borg við
krossgötur milli Freetown og Makeni í miðju landi. Hún er stærsta borg
Sierra Leone og var höfuðborg landsins, sem var þá verndarsvæði, á
árunum 1930 til 1961. Borgin er miðstöð viðskipta með pálmaolíu og
kjarna, engifer, kaffi, kakó og hrísgrjón. Flestar þessar vörur eru
fluttar um þjóðveginn til Freetown 174 km norðvestar. Bo hefur verið
miðstöð menntunar innlandsins síðan skólar múslima hófu starfsemi árið
1906. Þarna er aðalbókasafn landsmanna og kennaraskóli. Nokkur tímarit
eru gefin út og næststærsta sjúkrahús landsins er í borginni. Áætlaður
íbúafjöldi 1985 var 57 þúsund. |