Flóra og
fána.
Aðeins 3% landsins eru þakin náttúrulegum skógum. Skógræktin
hefur plantað tröllatrjám í veðruðu hæðalandslagi og meðfram vegum en
þessar aðgerðir duga ekki til að stöðva jarðvegseyðinguna.
Blómlegur Miðjarðarhafsgróður þekur strandlengju Kivu-vatns og myndar
mikla andstæðu við papýrusmýrar að austanverðu og þétta bambusskógana
í Virungas. Þar, á milli eldfjallanna, er aðalaðdráttarafl
ferðamanna, fjallagórillan. Mestu fjölbreytni í dýralífi er að
finna í Akagera þjóðgarðinum. Helztu dýrategundir þar eru bufflaar,
sebrahestar, antilópur, vörtusvín, simpansar, ljón, fílar,
nashyrningar og flóðhestar auk sjaldgæfra tegunda eins og
risamauraætna (pangolin). |