Uyo, höfuðborg Akwa
Ibomfylkis, er í Suðaustur-Nígeríu. Hún stendur við þjóðveginni milli
Oron og Ikot Ekpene. Hún er birgðastöð vyrir pálmaolíu og kjarna og
einnig markaðsborg fyrir kartöflur, cassava, pálmaafurðir o.fl. úr
nærsveitunum, þar sem Ibibiomenn stunda búskap. Í borginni er brugghús
og vefnaðarverksmiðja. Uyo-háskóli var stofnaður 1983. Áætlaður
íbúafjöldi 1991 var 67 þúsund. |