Port
Harcourt, höfuðborg Árfylkisins við Bonnýána í óshólmum Nígerfljótsins í
Suðaustur-Nígeríu. Hún er aðalhafnarborg landsins og miðstöð samgangna
í þjóðvega- og járnbrautakerfunum. Hún státar af miklum iðnaði og mikið
er flutt út af pálmaolíu, benzíni, kolum, tini, kólumbíti, pálmaafurðum,
kakói og jarðhnetum. Háskóli borgarinnar var stofnaður 1975 og
Árfylkisháskólinn (vísindi og tækni) árið 1971. Bretar stofnuðu borgina
árið 1915. Hún fékk nafn Lewis Harcourt greifa, sem var
nýlendumálaráðherra á árunum 1910-15. Áætlaður íbúafjöldi 1990 var 353
þúsund. |