Onitsha
er borg í Anambrafylki við Nígerfljótið í grennd við Enugu.
Pálmaafurðir, maís, hnetur, grænmeti og ávextir eru þar markaðsvörur og
olíuvörur, hjólbarðar, kúlulegur og naglar eru framleiddir í verksmiðjum.
Þarna er einnig átöppunarverksmiðja fyrir drykkjarvatn. Í borginni er
kvennakennaraskóli og holdsveikranýlenda. Leiðtogi Ibomanna, Obi, býr í
borginni. Árið 1966 tengdist Onitsha borginni Asaba með lengstu
þjóðvegabrú landsins. Áætlaður íbúafjöldi 1991 var 328 þúsund. |