Oka-Akoko er borg í
Yorubahæðum við þjóðveginn frá Owo og Ikare í suðvesturhluta Nígeríu.
Hún er markaður fyrir kartöflur, cassava, maís, hrísgrjón, pálmaolíu og
kjarna, okra og graskerja, sem yorubamenn rækta umhverfis hana. Baðmull,
kakó, pálmaafurðir og tóbak er safnað í borginni til útflutnings.
Áætlaður íbúafjöldi 1991 var 127 þúsund.