Kano,
höfuðborg Kanofylkis, er í norðurhluta Nígeríu. Hún er umkringd
skíðisgarði og flest húsin eru byggð úr leir. Þar er aðalframleiðslan
jarðhnetur, leður-, málm- og baðmullarvörur og stór markaður fyrir
landbúnaðarafurðir og kvikfé. Fylkisstofnun fyrir æðri menntir.
Kanofylkið var fyrrum eitt ríkja hausamanna (900>). Islam hélt innreið
sína á 12.-14. öld. Fulanimenn lögðu þetta svæði undir sig á 19. öld og
réðu ríkjum til 1903, þegar Bretar náðu yfirhendinni. Áætlaður
íbúafjöldi 1992 var 700 þúsund. |