Ikere-Ekiti (Ikere
eða Ikerre) er borg í Ondo-fylki í suðvesturhluta Nígeríu við veginn
milli Akure til Ado-Ekiti. Hún er birgðastöð fyrir kakóbaunir og
markaðsborg fyrir landbúnaðarafurðir (kartöflur „yams”, cassava,
hrísgrjón, maís, pálmaolíu og kjarna, okra og grasker). Í Ikere-Ekiti
eru kennaraskólar reknir af ríkinu og kristnum söfnuðum og sjúkrahús.
Áætlaður íbúafjöldi 1983 var 177 þúsund. |