Ife er
borg í Oyo-fylki í suðvesturhluta Nígeríu. Kakóbaunir, korn og pálmar
eru ræktaðir umhverfis borgina. Framleiðslan byggist á kakói, vinnslu
pálmaafurða, baðmullarvefnaði og sögunarmyllum. Obafemi
Awolowo-háskólinn var stofnaður 1961. Þarna eru Yorubalistasafn og
Stofnun afrískra fræða. Í fornborginni Ife er höll Oni, eins leiðtoga
hinna hefðbundnu trúarbragða yorubamanna. Borgin eyddist árið 1849 og
var endurbyggð 1882. Áætlaður íbúafjöldi 1990 var tæplega 256 þúsund. |