Abeokuta er höfuðborg Ogun-fylkis í suðvesturhluta Nígeríu. Hún er
tengd Lagos með járnbraut og er flutningamiðstöð fyrir landbúnaðarhérað,
sem framleiðir kakó, pálmakjarna og olíu. Mikið er um handvefnað, sem
er litaður í verksmiðjum á staðnum. Flestir íbúanna eru af yorubastofni.
Áætlaður íbúafjöldi 1990 var 368 þúsund.