Nouadhibou, fyrrum Port-Étienne, er stjórnsýslumiðstöð
Dakhlet-Nouadhibou-héraðs við Atlantshafið í norðvesturhluta Máritaníu.
Borgarbúar byggja afkomu sína aðallega á fiskveiðum og vinnslu.
Nærliggjandi höfn í Point Central varð miðstöð sjóflutninga 1963, þegar
útflutningur járngrýtis frá Fdérik hófst. Áætlaður íbúafjöldi 1987 var
tæplega 60 þúsund.